Tölvuves

Frá því að við blogguðum síðast höfum við lent í ýmsu og aðallega veseni.

Í stuttu máli þá fyrst dó tölvan hans Gumma, svo dó hún aftur og að lokum þá dó tölvan mín.

Mín er aftur komin í gang með nýjum hörðum disk og tölvan hans Gumma er í Californiu og gaurarnir þar eru búnir að finna loksins hvað er að. Ef að það gengur að laga hana þá verður hún komin hingað aftur eftir 2 vikur. Þangað til skipum við minni tölvu bróðurlega á milli okkar þar sem við erum bæði á lokasprettinum með verkefni þessarar annar.

Ég fór í bæinn með Ásdísi í gær að kaupa jólagjafir, smotterí handa sjálfri mér og svo aðeins jóladót. Í nýja flotta símanum mínum er skrefateljari sem að segir hversu langa vegalengd maður labbar á hverjum degi. Eftir að hafa skoða hversu langt við löbbuðum þá skil ég vel afhverju mér var illt í löppunum, 8km á hælum, geri aðrir betur.

Comments

Vá hvað þið eruð duglegar að versla og 8 km á hælum, geri aðrir betur.  En það er vissara að hafa lúkkið í lagi þegar maður skreppur í slíka leiðangra, maður verslar einhvern veginn meira og betur en þegar maður er með bad hair day. Hlakka til að sjá þig um jólin kv, Villý
...
Já finnst þér þetta ekki vel af sér vikið Ég hlakka sömuleiðis til að sjá þig um jólinn. Við verðum að halda saumaklúbb og hittast kannski líka á Vegamótum, nammi namm!! 
Jei, velkomin aftur á netið
Fyndið hversu háður maður er orðin því að komast á netið reglulega. Ég var orðin fastagestur hjá Ásdísi og Dodda til að komast á netið
Þetta kommentakerfi er drasl... bara að láta vita sko;)
Við fengum svo mikið spam að Gummi setti upp kerfi þar sem að við samþyggjum kommentin áður en þau birtast og svo lærir kerfið smám saman að þekkja þá sem eru í lagi. Gummi ætlar að skoða annað kerfi þegar önninn klárast. Ég var annars að skoða hvenær við erum í spring brake-i og það vill svo skemmtilega til að það er akkúrat um páskana. 
La la la
Heill sé þér Guðmundur.  

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Textual smileys will be replaced with graphical ones.
  • You can use Markdown syntax to format and style the text. Also see Markdown Extra for tables, footnotes, and more.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd> <img> <p> <br>

More information about formatting options

Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook